Skráning á mótið

Bacalaomótið 2017 – Skráning

Bacalaomótið fer fram í sjötta sinn laugardaginn 10. júní á aðalvellinum í Grindavík.

Mæting 14:00. Mót flautað á klukkan 15:04 og áætluð mótslok eru um kl. 17. Kvöldskemmtun og hin víðfræga “A la Bacalao” saltfiskveisla verður haldin í Gjánni og opnar húsið kl. 19:00 og matur hefst kl. 20:00

-Innifalið í mótsgjaldi sem er kr 8.000.- er eftirtalið:
-Glæsileg keppnistreyja sem mun nýtast við allmörg tækifæri og vallargjöld
-Ómæld gleði við að hlaupa inn á Grindavíkurvöll í fullum herklæðum og takkaskóm (ómetanlegt)
-Lýsi og liðamín – mánaðarskammtur ( sumum veitir ekki af ársbirgðum )
-Miði í saltfiskveisluna víðfrægu þar sem á boðstólum verður saltfiskur og meðlæti eins og hver getur í sig látið, verðlaunaafhendingar og gamanmál að hætti hússins, söngur og gleði ræður ríkjum.

Dagskrá kvöldskemmtunar:

Matseldin mun verða í öruggum höndum Bíbbans „bragðlaukameistara” Ólasonar sem hefur sérhæft sig í eldun á a la Bacalao saltfisk og hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir saltfiskrétti sína. Boðið verður uppá saltfiskrétti líkt og fyrri ár.
Skemmtikraftar : Jóhannes Kristjánsson og Guðni Ágústsson ásamt Bjartmari Guðlaugssyni

-Verðlaunaafhending og mannamál að hætti hússins þar sem söngur og gleði ræður ríkjum

Þeir sem taka með sér maka í veisluna þurfa að greiða kr. 3.000.- aukalega.

Greiðist inn á reikning nr. 0143-26-005178 kt. 581090-2349 um leið og þið hafið skráð ykkur inn.

Enginn er í vafa um að hér er á ferðinni frábær skemmtun og stór liður í því að brottfluttir Grindvíkingar hitti gamla félaga og eigi með þeim góðar stundir.

Höfum hugfast getuleysið fyrirgefst, viljaleysið ekki, TÖKUM ÞÁTT !!!

Skráðu þig hér að neðan:

    Nafn (þarf að fylla út)

    Gsm númer:

    Netfang (þarf að fylla út)

    Fæðingardagur og ár:

    Stærð treyju:
    MLXLXXL

    Maki kemur í veislu:
    Nei

    Fótbolti eða Vítakeppni:
    FótboltiVítakeppni

    Annað sem þú vilt láta koma fram?

    Ég hef lesið og samþykki persónuverndarstefnu www.bacalaomotid.is

    captcha