Reglur mótsins

1. Bacalaomótið er fyrir knattspyrnumenn frá Grindavík 30 ára og eldri. Verði menn þrítugir á árinu teljast þeir gjaldgengir. Þeir leikmenn sem spilað hafa mótsleik í meistaraflokki á vegum KSÍ á árinu eru ekki gjaldgengir.

2. “Knattspyrnumaður” frá Grindavík er sá sem með einhverjum hætti hefur tengst knattspyrnu í Grindavík. Innan þess ramma eru m.a. stuðningsmenn, leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn. Það eitt að hafa hugsað til Knattspyrnudeildar Grindavíkur á jákvæðan hátt er einnig næg ástæða fyrir mætingu.

3. Þátttakendur skulu skrá sig hjá undirbúningsnefnd og verða gjaldgengir eftir að hafa innt af hendi mótsgjald.
Allur ágóði af mótinu rennur til grasrótarstarfs Knattspyrnudeildar Grindavíkur.

4. Mótið er tvískipt þar sem annarsvegar er spilaður minnibolti og hinsvegar vítakeppni fyrir þá sem ekki treysta sér í minnibolta. Spilað verður í þremur aldursskiptum deildum, 30 – 40 ára, 40 – 50 ára og betri deild fyrir leikmenn 50 ára og eldri. Spilaður er sjö manna bolti með einum markverði og sex útileikmönnum. Hvert lið skal skipað að minnsta kosti 8 leikmönnum, s.s. einn markvörður og sex útileikmenn. Fjöldi þátttakenda í hverjum aldurshópi skal vera sem jafnastur. Hvert lið skal hafa liðstjóra og vatnsbera, það eru tilvalin hlutverk fyrir þá sem ekki treysta sér lengra en að hliðarlínu en er skilt að vera í keppnistreyju. Elsti leikmaður í hverjum aldurshóp skal vera fyrirliði síns liðs.

5. Í vítaspyrnukeppni keppa þeir einstaklingar sem ekki treysta sér í minnibolta, spyrnt verður þar til einn stendur eftir sem vítakóngur og hlýtur sá farandbikar og eignabikar.

6. HÁTTVÍSI, PRÚÐMENNSKA OG SAMBABOLTI er yfirskrift mótsins. Leikmenn skulu leitast við að forðast allt það háttalag sem getur stefnt líkamlegri og andlegri heilsu andstæðinga og samherja í hættu, leikmenn skulu umsvifalaust viðurkenna fyrir dómara hafi þeir gerst brotlegir við knattspyrnulög og leikmenn skulu draga fram alla þá kunnáttu í knattleikni sem þeir hafa viðað að sér á ferlinum til þess að skemmta áhorfendum hið mesta.
Þeir sem koma með því hugarfari að tækla allt sem hreyfist verða útilokaðir frá keppni næstu 10 ár en hafa mætingarskyldu og verða skráðir í sjósund á meðan bannið er í gildi.
Í stuttu máli er sem sagt bannað að tækla og brúka munn.

7. Mótsstjórn hefur alvald um keppnisfyrirkomulag og hefur búið til þær reglur sem stuðst er við. Fyrirkomulag á keppni hverju sinni getur þó miðast af þátttöku hverju sinni og hefur stjórnin fullt vald til breytinga með engum fyrirvara ef þurfa þykir.
Fullt tillit er tekið til allra athugasemda eftir hvert mót fyrir sig og gerðar breytingar ef þurfa þykir. Liðunum skal skipt upp í tvö hverfi, þ.e. Þórkötlustaðarhverfi sem kallast Þórkettlingar og svo Járngerðastaðahverfi sem kallast Járngerðingar. Mótsstjórn ákveður einnig í hvorum litnum liðin spila í, en fyrirfram skal gengið út frá því að liðin skiptist á litum ár hvert. Litir skulu ávalt miðast við liti á aðal og varabúningum meistaraflokks Knattspyrnudeildar Grindavíkur hverju sinni.

8. Keppt er um hinn glæsilega Bacalao bikar sem Siggi í Ísspor gaf mótinu árið 2010.
Fyrirliði elsta liðsins mun veita honum viðtöku fyrir hönd síns hverfis og er gripurinn afhentur í Saltfiskveislunni sem fram fer síðar um kvöldið.
Samanlagður stigafjöldi úr viðureignum milli hverfanna ákvarðar sigurvegarann. Verði hverfin jöfn að stigum verður gripið til vítaspyrnukeppni í elstu liðunum til að skera úr um sigurvegara. Markatala gildir ekki þar sem dómarar hafa rúmar heimildir til að gera leiki jafnari ef þeim sýnist svo. (t.d. ef annað liðið er að vinna með 6 marka mun og leikurinn rétt hálfnaður).
Einnig verða verðlaun veitt elsta þátttakanda mótsins og vítakóng mótsins.
Þetta er einróma ákvörðun mótsstjórnar og henni verður ekki hnikað.

9. Dómarar hafa rúmar heimildir og geta spjaldað leikmenn að vild fyrir grófar tæklingar, ljótt orðbragð, eða slæma framkomu og getur viðkomandi fengið þá 2 mínútna brottvísun. Viðkomandi er sem sagt rekinn út af í 2 mínútur til að kæla sig niður, en annar liðsfélagi má koma strax inná og síðan getur viðkomandi komið aftur inn á eftir það.
Við minnum á að dómarar geta einnig jafnað í liðum með fækkun eða fjölgun leikmanna sé einsýnt að annað liðið sé að valta yfir hitt.

10. „Læknir” verður staðnum og verður hann einkennisklæddur í hvítan slopp með rauðum kross. Um leið og einhver meiðist, fer í fýlu eða örmagnast, þá mætir læknirinn með „orkudrykk”. Honum er heimilt að fara inná völlinn og „lækna” leikmenn hvenær leiks sem er, án afskipta dómara, og verður hann skipaður af mótsnefnd hverju sinni.

11. Sérstaklega skal tekið fram að sömu reglur gilda um sendingar til markvarðar og gilda í deildarkeppnum á vegum KSÍ.

12. Leikið verður á aðalleikvangi Knattspyrnudeildar Grindavíkur.

13. Ekki er heimilt að spila á grasskóm í keppninni.

14. Allir leikir skulu fara fram skv. knattspyrnulögum KSÍ og reglugerð KSÍ um knattspyrnumót, nema annars sé getið í reglum þessum.