Persónuvernd

Persónuvernd á www.bacalaomotid.is

Við hjá Knattspyrnudeild U.M.F.G. tökum alvarlega þær skyldur sem fylgja persónuvernd og öryggi persónuupplýsinga og meðhöndlum þær upplýsingar sem koma í gegnum vefinn www.bacalaomotid.is í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Hér fyrir neðan förum við yfir hvaða upplýsingar við skráum, með hvaða hætti og í hvaða tilgangi.

Hvaða upplýsingar skráum við og í hvaða tilgangi

Skráning í Bacalaomótið:

Þegar þú skráir þig í Bacalaomótið sem ætlað er knattspyrnumönnum frá Grindavík 30 ára og eldri, þá skráum við persónuupplýsingar eins og nafn, símanúmer, fæðingardag og netfang auk upplýsinga um samskipti okkar.  Það gerum við svo við getum afgreitt erindið.

Við birtum einnig nöfn þátttakenda á heimasíðunni svo auðveldlega sé hægt að sjá hverjir hafa skráð sig til leiks.

Vefurinn www.bacalaomotid.is notar ekki vafrakökur og safnar engum persónugreinanlegum gögnum sjálfkrafa.

Hvaða heimildir höfum við til að vinna með upplýsingarnar?

Við höfum samþykki frá þér. Þegar þú skráir þig til þátttöku í gegnum vefinn þá gefur þú leyfi fyrir því að upplýsingarnar séu notaðar í þeim tilgangi sem þeirra er aflað.

Hversu lengi geymum við persónuupplýsingar?

Við birtum þátttakendalista aftur í tímann á heimasíðunni til að halda utan um söguna og geymum  upplýsingarnar í samræmi við það.  Samkvæmt 20. grein laga áttu rétt til leiðréttingar, eyðingar og flutnings eigin gagna. Ef þú vilt nýta þér þau réttindi eða hefur spurningar varðandi persónuvernd á www.bacalaomotid.is hafðu þá endilega samband við [email protected]

Upplýsingar til þriðja aðila

Við deilum persónuupplýsingum þínum ekki með neinum utan starfsmanna Knattspyrnudeildar U.M.F.G. og þjónustuveitenda á okkar vegum.

Persónuvernd barna

Við skráum engar persónuupplýsingar um börn yngri en 13 ára.

Breytingar

Við áskiljum okkur rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu okkar.

Persónuverndarstefna þessi tók gildi 15. júlí 2018.