Bacalaomótið 2013 – Skráning

Undirbúningur í fullum gangi
22.05.2013

Bacalaomótið 2013 – Skráning

Saltfiskur

Bacalaomótið fer fram í þriðja sinn laugardaginn 1. júní á aðalvellinum í Grindavík.

Mæting er kl 14:00 þar sem búningar verða afhentir og myndataka liða fer fram áður en mótið sjálft hefst. Það mun svo verða flautað til leiks kl.15:04. Stefnt er á að mótinu ljúki um kl 17:00 þannig að keppendur hafi góðan tíma til að skola af sér og skipta yfir í betri gallann fyrir hina víðfrægu a la Bacalao saltfiskveislu sem hefst kl 20:00 að Seljabót 7, þar sem áður var til húsa Geoplank á annari hæð (Gluggaverksmiðjan PGV á neðri hæð), húsið opnar kl. 19:00.

Matseldin mun verða í öruggum höndum Bíbbans „bragðlaukameistara” Ólasonar sem hefur sérhæft sig í eldun á a la Bacalao saltfisk og hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir saltfiskrétti sína. Boðið verður uppá saltfiskrétti líkt og fyrri ár.

Innifalið í mótsgjaldi sem er kr 8.000.- er eftirtalið:

  • -Glæsileg keppnistreyja sem mun nýtast við allmörg tækifæri og vallargjöld
  • -Ómæld gleði við að hlaupa inn á Grindavíkurvöll í fullum herklæðum og takkaskóm (ómetanlegt)
  • -Lýsi og liðamín – mánaðarskammtur ( sumum veitir ekki af ársbirgðum )
  • -Miði í saltfiskveisluna víðfrægu þar sem á boðstólum verður saltfiskur og meðlæti eins og hver getur í sig látið, verðlaunaafhendingar og gamanmál að hætti hússins, söngur og gleði ræður ríkjum. Jóhannes Kristjánsson eftirherma ásamt Ara Jónssyni söngvara (Roof Tops) skemmta. Upprifjun á Karaoke-keppni Grindavíkur sem haldin var á Hafurbirni forðum daga. Þar munu Dagbjartur Willardsson og Páll Valur Björnsson meðal annarra stíga á svið. Öllu þessu verður fagmannlega stýrt af Agnari Steinarssyni skemmtanastjóra.

Þeir sem taka með sér maka í veisluna þurfa að greiða kr. 3.000.- aukalega.

Greiðist inn á reikning nr. 0146-26-000642 kt. 581090-2349 um leið og þið hafið skráð ykkur inn.

Enginn er í vafa um að hér er á ferðinni frábær skemmtun og stór liður í því að brottfluttir Grindvíkingar hitti gamla félaga og eigi með þeim góðar stundir.

Höfum hugfast getuleysið fyrirgefst, viljaleysið ekki, TÖKUM ÞÁTT !!!